Infrared bekkurinn
Þúsundir Íslendinga nýta sér infrared meðferð reglulega og finna fyrir jákvæðum áhrifum á líkama og sál. M7 infrared bekkurinn býr yfir Full Spectrum infrared tækni sem gefur frá sér nær-, mið- og fjarbylgjur — sem ná mun dýpra inn í bandvefi, liði og vöðva en hefðbundnir infrared klefar.
Hámarksárangri er náð á aðeins 15 mínútum. Einnig er í boði 20 og 30 mínútna tímar.
Hvað getur M7 infrared bekkurinn gert fyrir þig?
- Rannsóknir benda til að nærbylgjur auki kollagenframleiðslu líkamans
- Bætt blóðflæði og súrefnisflutningur til vöðva og vefja
- Minnkar bólgu og bætir starfsemi ónæmiskerfis
- Dregur úr verkjum í baki og liðum
- Hraðari endurheimt eftir álag
- Minnkar vöðvaspennu og verki eftir álag eða æfingar
- Dýpri slökun og minni streita
- Minni svitamyndun en í hefðbundnum infrared klefum
M7 infrared ljósabekkurinn hefur verið mældur og metinn af Geislavörnum ríkisins. Niðurstöðurnar staðfesta að bekkurinn gefur ekki frá sér UV ljósgeisla líkt og hefðbundnir ljósabekkir. Geislavarnir ríkisins mæla þó eindregið með að einstaklingar noti ekki infrared bekk og hefðbundinn ljósabekk sama dag. Ekki er ráðlagt að börn og ungmenni yngri en 16 ára noti infrared bekkinn.