Skilmálar áskriftarsamnings
Samningsskilmálar þessir gilda frá 1. september 2023 — Sportsól Hamrasól ehf. (5310230480)
Við hvetjum þig til að kynna þér vel skilmála áskriftarsamningsins. Eftirfarandi skilmálar gilda um áskrift að ljósanotkun hjá Sportsól og er bæði áskrifendum og öðrum notendum hennar skylt að hlíta þessum skilmálum.
- Sportsól veitir áskrifanda aðgang að ljósakorti sem áskrifandi er greiðandi að hverju sinni.
- Sportsól leigir áskrifanda ótakmarkaða ljósatímanotkun á meðan gildur samningur er í gildi (miðað við einu sinni á dag), með hámarki 14 mín. hvert skipti. Óheimilt er að selja, leigja eða lána áskriftina áfram.
- Áskrifandi skuldbindur sig í tólf mánuði eða með 1 mánaðar uppsagnarfresti. Ekki er hægt að segja upp innan samningstímabilsins. Greidd áskrift er ekki afturkræf.
- Áskrift hvers mánaðar ber áskrifanda að greiða fyrirfram.
- Sportsól er heimilt að breyta mánaðargjaldinu með tilkynningu á sportsol.is. Mánaðargjaldið breytist þó ekki fyrstu 1 eða 12 mánuðina, eftir lengd samnings.
- Sportsól er heimilt að fletta upp áskrifendum á vanskilaskrá Creditinfo. Sé áskrifandi á vanskilaskrá getur Sportsól rift samningnum eða hafnað nýskráningu.
- Sportsól er eigandi ljósabekkjanna og ber áskrifanda að gæta þeirra vel.
- Uppsagnir skulu berast með þriggja (3) eða eins (1) mánaðar fyrirvara, fyrir 15. þess mánaðar svo uppsögn taki gildi næstu mánaðamót. Ótímabundnir og 12 mánaða samningar endurnýjast sjálfkrafa án skriflegrar uppsagnar á askrift@sportsol.is.
- Skilríki ber að sýna í hvert skipti sem sólbaðsstofan er sótt. 18 ára aldurstakmark.
- Óheimilt er að leyfa þriðja aðila að nýta kortið eða bjóða þriðja aðila með á áskriftarkort.
- Sportsól áskilur sér rétt til að breyta áskriftarskilmálum, með a.m.k. eins mánaðar fyrirvara á sportsol.is.
- Sportsól heitir áskrifanda fullum trúnaði um allar upplýsingar sem gefnar eru upp í tengslum við viðskiptin.
- Mál út af samningi þessum má reka fyrir Héraðsdómi Reykjavíkur.