Um okkur

Velkomin í Sportsól

Við rekum tvær sólbaðsstofur á höfuðborgarsvæðinu, Sportsól Hamraborg 16 og Sportsól Hverafold 1-3.

Okkar loforð

Við leggjum áherslu á að bjóða fyrsta flokks þjónustu, sveigjanlegan opnunartíma og hágæða sólbaðsupplifun. Hreinlæti er í fyrirrúmi hjá okkur, hver bekkur er vandlega þrifinn og sótthreinsaður eftir hverja notkun. Þú færð hjá okkur frítt handklæði til afnota og við bjóðum upp á hreina og þægilega sturtuaðstöðu.

Bekkirnir okkar fá reglulegt og gott viðhald. Við skiptum um perur oftar en framleiðendur mæla með til að tryggja að viðskiptavinir okkar upplifi alltaf hámarks árangur.

Hágæða sólbekkir í Hamraborg
  • Luxura JEWEL — háþróuð ljósatækni og hámarks þægindi.
  • Luxura VEGAZ — ný tækni sem skilar jafnari og dýpri brúnku.
  • Luxura Hapro — standandi bekkur, minni svitamyndun og jöfn brúnka.
  • Merican M7 — infrared heilsubekkur, hámarks árangur á 15 mínútum.
Toppsólbekkir í Hverafold
  • Luxura JEWEL — háþróuð ljósatækni og hámarks þægindi.
  • Luxura Hapro — standandi bekkur, minni svitamyndun og jöfn brúnka.
  • Luxura X10 — klassískur bekkur með háþróuðum andlitsljósum og góðri kælingu.

Ábyrg sólbaðsupplifun

Það er mikilvægt að nota sólbekki á ábyrgan hátt til að koma í veg fyrir sólbruna. Við mælum með að byrja með styttri tímum og smám saman auka tíma eftir því sem húðin aðlagast. Starfsfólk okkar er ávallt til staðar til að leiðbeina og veita ráðleggingar.

Með áskrift færðu enn meiri þægindi

Með áskrift hefur þú aðgang að öllum okkar bekkjum og getur komið í ljós eða í infrared ljósameðferð 1x á dag allan ársins hring.

Secret Link
This site is registered on wpml.org as a development site. Switch to a production site key to remove this banner.